Hlið

Hliðin okkar eru hvert öðru ólík. Þau henta mismunandi kröfum viðskiptavina okkar og þannig hægt að útvega hlið sem sniðin eru að þörfum hvers og eins. 

Delta er lang vinsælasta hliðið hjá viðskipavinum. Delta hliðin eru í stöðugri þróun og okkar fólk í Heras sér um að við fáum að njóta þess. Þau eru hljóðlát, snögg og bilanir mjög fátíðar.  

Alltaf er hægt að fá varahluti í Delta hliðin, sem og önnur hlið frá okkur. 

Hægt er að velja um varanleg hlið eða færanleg sem hentar vel fyrir byggingarsvæði, því  

auðvelt er að færa þau til eftir því sem þörf krefur. 

Öll hliðin er hægt að tengja við gsm símakerfið. Það auðveldar vinnu og umgang um þau. 

Öryggi hliðanna er mikið og því lítil sem engin hætta á að einhver klemmist eða verði á milli. Hliðin lokast með ljúflokun sem við þekkjum betur í skápum og skúffum í eldhúsinu heima.  

Allt er þetta gert með öryggi í huga en um leið eykur það endingu hliðanna. 

Vinsælt er að tengja rennihliðin við gsm stýringar og einnig er Heras Connect aðgangur sem hægt að fylgjast með hvort hliðið er opið eða lokað, einnig hvað er í vændum varðandi viðhald og eftirlit. 

Frábær nýjung á okkar allra vinsælustu vöru.

https://hagvis.is/pages/heras-connect-ad

Velkomin að sjá vörurnar í sýningarsal okkar að Brúarfljóti 5 R í Mosfellsbæ

Nánari upplýsingar hagvis@hagvis.is - www.hagvis.is