Aðgangsstýring á húsnæði - Exivo

Exivo aðgangsstýring getur hentað öllum heimilum og fyrirtækjum. Exivo er með skýjalausn og er aðgengilegt með tölvu og appi hvar sem er svo lengi sem nettenging er fyrir hendi 

 DormaKaba framleiðir það allra nýjasta í margháttuðum aðgangsstýringum fyrir hverskonar lausnir. Kort eða flaga sem borin er að húni opnar án lykla. 

Þannig er hægt að afmarka hverjir fá aðgang hvaða dag og hvaða tíma dags. Þessu er auðveldlega stjórnað á skýi sem lítið mál er að breyta hvenær sem er sólahrings. Hægt er að vera í áskrift á skýi eða í þjónustusamningi. 

Frábær lausn - ekki síst fyrir fyrirtæki sem eru að drukkna í lyklum og/eða með óstöðugan mannaforða. Einfalt er að loka númeri í skýi ef starfsmaður hættir, lykill týnist eða fæst ekki til baka. 

Fyrirtækið býður einnig hurðapumpur og rennihurðir fyrir flugvelli, hótel  og almenn fyrirtæki. 

Við hjá Hagvís erum stolt af því að vera umboðsaðilar fyrir DormaKaba á Íslandi. 

 

Hér getur þú fundið bækling um Exivo aðgangsstýringu

SENDA FYRIRSPURN